Samþykkt nr. 1405/2023 um umgengni og þrifnað utan húss í Fjarðabyggð, Fljótsdalshreppi, Múlaþingi, Sveitarfélaginu Hornafirði og Vopnafjarðarhreppi

SAMÞYKKT
um umgengni og þrifnað utan húss í Fjarðabyggð, Fljótsdalshreppi, Múlaþingi, Sveitarfélaginu Hornafirði og Vopnafjarðarhreppi.

1. gr.

Eiganda eða umráðamanni húss, girðinga og annarra mannvirkja er skylt að halda eignum vel við og halda lóðum og lendum hreinum og snyrtilegum.

2. gr.

Óheimilt er að skilja eftir á víðavangi, flytja, dreifa eða geyma lausamuni á þann hátt að valdið geti slysum, mengun eða lýti í umhverfinu. Þetta gildir jafnt um smærri sem stærri hluti, svo sem bílflök, bílhluta, kerrur, vélar, tæki, landbúnaðarplast, byggingarefni, báta, skipsskrokka og annað sambæri­legt.

3. gr.

Tæki og hluti sem ekki eru í almennri eða stöðugri notkun skal geyma þannig að nágrannar og vegfarendur hafi ekki ama af. Bifreiðar og önnur skráningarskyld ökutæki skulu geymd á þar til gerðum stæðum.

4. gr.

Óheimilt er að geyma skráningarskyld ökutæki án skráningarmerkja, kerrur, tæki, vinnuvélar, báta eða aðra hluti á almennum bifreiðastæðum, á götum eða á almannafæri.

5. gr.

Þeir sem annast flutninga skulu haga þeim þannig að ekki valdi óþrifnaði og haga skal þvotti og hreinsun á mannvirkjum og tækjum þannig að nágrannar og vegfarendur verði ekki fyrir óþæg­indum.

6. gr.

Heilbrigðisnefnd eða aðilum í hennar umboði er heimilt að fjarlægja skráningarskyld ökutæki án skráningarmerkja, tæki, kerrur, vinnuvélar, báta og aðra lausamuni og drasl á kostnað og ábyrgð eiganda að undangenginni viðvörun, t.d. með álímingarmiða eða ábyrgðarbréfi, þar sem eiganda/ábyrgð­ar­manni skal almennt veittur 10 daga frestur til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri eða bregðast við tilmælum.

Telji heilbrigðisfulltrúi svo alvarlega hættu stafa af geymslu hlutar eða tækis að aðgerð þoli enga bið er heimilt að fjarlægja slíka hluti eða tæki án viðvörunar.

Bílflökum og öðrum verðlausum hlutum er heimilt að farga strax að loknum fresti sem veittur er samkvæmt 1. mgr., enda hafi þá engin andmæli borist.

Skráningarskyld ökutæki án skráningarmerkja og aðrir hlutir og verðmæti sem eru fjarlægð að loknum fresti skulu geymd í vörslu viðkomandi sveitarfélags í 45 daga og síðan fargað hafi eigandi ekki vitjað eigna sinna og leyst út gegn greiðslu áfallins kostnaðar, svo sem dráttar- og geymslu­gjalds.

Liggi fyrir skráningarmerki, vélarnúmer eða annað sambærilegt skal eiganda tilkynnt um förg­un­ina með tryggilegum hætti með a.m.k. 15 daga fyrirvara. Áfallinn kostnað vegna töku og geymslu skráningarskyldra ökutækja án skráningarmerkja og annarra hluta er heimilt að innheimta hjá eigendum samkvæmt ákvæðum laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Heimilt er að selja nýtilega hluti úr bifreiðum og annað nýtilegt sem er tekið í vörslu og ekki leyst út samkvæmt framansögðu til að mæta kostnaði vegna töku og geymslu.

7. gr.

Hafi rekstrarliði ekki sinnt fyrirmælum um úrbætur innan tiltekins frests, getur heilbrigðisnefnd ákveðið honum dagsektir þar til úr er bætt skv. 61. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og meng­unar­varnir og 61. gr. reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunar­varna­eftirlit.

Dagsektir renna til rekstraraðila heilbrigðiseftirlits og er hámark þeirra kr. 500.000 á dag.

Heilbrigðisnefnd er heimilt að láta vinna verk á kostnað hins vinnuskylda ef fyrirmæli um fram­kvæmd eru vanrækt og skal kostnaður þá greiddur til bráðabirgða af viðkomandi heilbrigðis­eftirliti en innheimtast síðar hjá hlutaðeigandi.

Kostnað við verkið sem og dagsektir má innheimta með fjárnámi. Þegar verk það sem eftirlitsaðili lætur vinna er komið til vegna vanhirðu og óþrifa eða heilsuspillandi aðstæðna í húsi, á lóð eða í farartæki, er kostnaður tryggður með lögveðsrétti í viðkomandi húsi, lóð eða farartæki í tvö ár eftir að greiðslu er krafist.

8. gr.

Heimilt er að innheimta gjald fyrir útlögðum kostnaði af eftirlitsskyldri starfsemi fyrir eftirlit samkvæmt samþykkt þessari í samræmi við 4. mgr. 46. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 5. mgr. 65. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.

Heilbrigðisnefnd skal láta birta gjaldskrá í B-deild Stjórnartíðinda. Gjöld samkvæmt 1. mgr. má innheimta með fjárnámi.

Gjöld skulu tryggð með lögveðsrétti í viðkomandi fasteign tvö ár eftir gjalddaga þegar leyfi eða þjónusta er tengd notkun fasteignar.

9. gr.

Um brot gegn samþykkt þessari og um valdsvið, þvingunarúrræði, málsmeðferð, úrskurði og viðurlög skal farið samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. og ákvæði 66. og 68. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.

10. gr.

Samþykkt þessi er hér með staðfest samkvæmt 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 2. mgr. 8. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.

Samþykktin öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi samþykkt nr. 668/2010 um umgengni og þrifnað utan húss í Fljótsdalshreppi, Fjarðabyggð, Seyðisfjarðarkaupstað, Fljótsdals­héraði, Breiðdalshreppi og Sveitarfélaginu Hornafirði.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 12. desember 2023.

F. h. r.

Gunnlaug Helga Einarsdóttir.

Trausti Ágúst Hermannsson.

B deild - Útgáfud.: 19. desember 2023

25. sveitastjórnarfundur boðaður 09.01.2024

25. fundur sveitarstjórnar Fljótsdalshrepps, Végarði 9.1. 2024, kl. 9:00

Dagskrá: 

  1. Landsvirkjun-skýrsla fyrir árið.
  2. Gunnarsstofnun-skýrsla fyrir árið
  3. Húsnæðisáætlun Fljótsdalshrepps 2024
  4. Umhverfisúttekt Kröflulínu 3.
  5. Fundargerðir:
  1. Byggingar-og skipulagsnefndar 29.12.2023
  2. Aðalfundar Héraðsskjalasafns Austurlands 22. 12. 2023
  3. Vatnajökulsþjóðgarður-svæðisráð austursvæðis 6.12.2023
  4. Heilbrigðisnefndar Austurlands 7.12.2023
  5. Sambands íslenskra sveitarfélaga 5.12.2023
  6. Sambands íslenskra sveitarfélaga 15.12.2023
  1. Skýrsla sveitarstjóra
  2. Önnur mál

 

Oddviti

Lárus Heiðarsson




25. sveitastjórnarfundur boðaður 09.01.2024

25. fundur sveitarstjórnar Fljótsdalshrepps, Végarði 9.1. 2024, kl. 9:00

Dagskrá: 

  1. Landsvirkjun-skýrsla fyrir árið.
  2. Gunnarsstofnun-skýrsla fyrir árið
  3. Húsnæðisáætlun Fljótsdalshrepps 2024
  4. Umhverfisúttekt Kröflulínu 3.
  5. Fundargerðir:
  1. Byggingar-og skipulagsnefndar 29.12.2023
  2. Aðalfundar Héraðsskjalasafns Austurlands 22. 12. 2023
  3. Vatnajökulsþjóðgarður-svæðisráð austursvæðis 6.12.2023
  4. Heilbrigðisnefndar Austurlands 7.12.2023
  5. Sambands íslenskra sveitarfélaga 5.12.2023
  6. Sambands íslenskra sveitarfélaga 15.12.2023
  1. Skýrsla sveitarstjóra
  2. Önnur mál

 

Oddviti

Lárus Heiðarsson




Takk Helga!

Úttekt var tekin á ástandi gistiheimilisins við Végarð 6.12.23

Rækileg athugun fór fram af hálfu úttektaraðila á öllum vistarverum í aðalbygginu og þjónustuhúsi svo og á búnaði. Endurbætur og viðhald á samningstíma hefur verið í góðu samstarfi á milli samningsaðila. Engar athugasemdir voru gerðar hvorki við ástand á mannvirkjun né á búnaði. Það var samdóma álit úttektaraðila að ástand og umgengni á mannvirkjum og búnaði sé óaðfinnanlegt og til fyrirmyndar.

Við afhendingu lykla var Helgu þökkuð störfin og hún þakkaði fyri afnot af húsinu í 14 ár.

Helga

We use cookies on our website. Some of them are essential for the operation of the site, while others help us to improve this site and the user experience (tracking cookies). You can decide for yourself whether you want to allow cookies or not. Please note that if you reject them, you may not be able to use all the functionalities of the site.

Ok