Nýtt deiliskipulag fyrir Víðivelli ytri 2 samþykkt
Sveitarstjórn Fljótsdalshrepps samþykkti á fundi 7. maí 2024 að tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Víðivelli ytri 2 í Fljótsdalshreppi verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hægt er að nálgast tillöguna á skrifstofu sveitarfélagsins í Végarði, hér á heimassíðu hreppsins og í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdum skal skilað til skipulagsfulltrúa Fljótsdalshrepps Végarði, 701 Egilsstöðum eða á netfangið fljotsdalshreppur@fljotsdalur.is til og með 12. júlí 2024.
Skipulagsfulltrúi Fljótsdalshrepps,
Sveinn Þórarinsson.