Frístundabyggð í landi Víðivalla ytri I. - Nýtt deiliskipulag

Sveitarstjórn Fljótsdalshrepps samþykkti á fundi 6. febrúar 2023 að tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir frístundabyggð í landi Víðivella ytri I yrði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að nálgast tillöguna á skrifstofu sveitarfélagsins í Végarði og á heimasíðu þess www.fljotsdalur.is.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdum skal skilað til skipulagsfulltrúa Fljótsdalshrepps Végarði, 701 Egilsstöðum eða á netfangið fljotsdalshreppur@fljotsdalur.is til og með 25. apríl 2023.

Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.

                                               Skipulagsfulltrúi Fljótsdalshrepps

                                               Sveinn Þórarinsson