Fögur framtíð í Fljótsdal er samfélagsverkefni sem stofnað var til með samfélagsþingi vorið 2019. Eitt af áhersluverkefnum eftir það þing var að hvetja Fljótsdalshrepp til að stofna verkefnasjóð til stuðnings nýsköpunar, menningar og atvinnuskapandi verkefnum í Fljótsdal. Skipulagsskrá sjóðsins var staðfest í apríl 2020 ber sjóðurinn nafnið Samfélagssjóður Fljótsdals.
Með Samfélagsjóðnum opnast styrktækifæri, ekki bara fyrir Fljótsdælinga, heldur alla einstaklinga, félög og lögaðila sem vilja byggja upp og styðja við þá paradís sem Fljótsdalurinn er. Áætlað er að úthluta um 12 milljónir króna árlega í verkefnastyrki er falla að markmiðum sjóðsins. Opið er fyrir umsóknir. Umsóknafrestur rennur út 14. febrúar 2022.
Allar nánari upplýsingar um sjóðinn má finna hér neðar, þ.e. stofnskrá sjóðsins og úthlutunarreglur. Úthlutun tekur mið af áherslum sjóðsins hverju sinni. Einnig er hægt að leita til verkefnastjóra Fagrar framtíðar í Fljótsdal, Ásdísar Helgu Bjarnadóttur hjá Austurbrú, vegna aðstoðar við umsóknir á netfangið asdis@austurbru.is eða í síma 470 3800/470 3810.