Fögur framtíð í Fljótsdaler samfélagsverkefni sem stofnað var til með samfélagsþingi vorið 2019. Eitt af áhersluverkefnum eftir það þing var að hvetja Fljótsdalshrepp til að stofna verkefnasjóð til stuðnings nýsköpunar, menningar og atvinnuskapandi verkefnum í Fljótsdal. Skipulagsskrá sjóðsins var staðfest í apríl 2020 ber sjóðurinn nafnið Samfélagssjóður Fljótsdals.
Með Samfélagsjóðnum opnast styrktækifæri, ekki bara fyrir Fljótsdælinga, heldur alla einstaklinga, félög og lögaðila sem vilja byggja upp og styðja við þá paradís sem Fljótsdalurinn er. Áætlað er að úthluta um 12 milljónir króna árlega í verkefnastyrki er falla að markmiðum sjóðsins. Næst verður opnað fyrir umsóknum í janúar 2023.
Allar nánari upplýsingar um sjóðinn má finna hér neðar, þ.e. stofnskrá sjóðsins og úthlutunarreglur. Úthlutun tekur mið af áherslum sjóðsins hverju sinni. Einnig er hægt að leita til Páls Baldurssonar verkefnastjóra hjá Austurbrú vegna aðstoðar við umsóknir á netfangið palli@austurbru.is eða í síma 896-6716.