Lokun skrifstofu
Skrifstofa Fljótsdalshrepps verður lokuð föstudaginn 11. mars 2022.
Verkefnastjóri Fagrar framtíðar verðu ekki í Végarði daganna 14.-21. mars en svarar pósti og verður aðgengileg í síma og fjarfundum 14.-16. mars.
Skrifstofa Fljótsdalshrepps verður lokuð föstudaginn 11. mars 2022.
Verkefnastjóri Fagrar framtíðar verðu ekki í Végarði daganna 14.-21. mars en svarar pósti og verður aðgengileg í síma og fjarfundum 14.-16. mars.
Í Fljótsdal er unnið að samfélagsverkefni sem ber nafnið Fögur framtíð í Fljótsdal. Árlega eru haldin samfélagsþing sem marka verkefnaáherslur í átt að sameiginlegri framtíðarsýn. Nú er komin út ársskýrsla verkefnisins fyrir 2021.
Hægt er að skoða hana hér.
Undirituð hefur verið viljayfirlýsing um samstarf á milli Fljótsdalshrepps og Copenhagen Infrastructure Energy Transition Fund um samstarf og rannsóknir á mögulegri uppbyggingu og reksturs vindorkugarðs í Fljótsdalshreppi. Samhliða að eiga samstarf um að skoða tækifæri til þróunar og uppbyggingar á annarri atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu sem tengist verkefninu beint eða óbeint s.s. vegna tækninýjunga, hráefna sem til falla eða hagkvæmrar nýtingar raforku.
Sjá yfirlýsingu.
Sveitarstjórn Fljótsdalshrepps hefur samþykkt ársreikning 2021. Rekstrartekjur sveitarfélagsins námu 224,1 mkr. og rekstrargjöld 244,5 mkr. Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 1,6 mkr. Rekstrarniðurstaða ársins er því neikvæð um 63,8 mkr.
Það er mat sveitarstjórnar að áhrif Covid-19 faraldsins hafi haft óveruleg áhrif á rekstur og reikningsskil sveitarfélagsins. Sveitarfélagið jók útgjöld sín á árinu til að mæta almennri niðursveiflu í hagkerfinu í takt við áskoranir stjórnvalda. Áhrifanna mun gæta áfram en sveitarstjórn telur að faraldurinn muni ekki hafa teljandi áhrif á afkomu sveitarfélagsins eða getu þess til að standa við fjárhagslegar skuldbindingar sínar.
Peningalegar eignir sveitarfélagsins í árslok námu 281,2 mkr. og skuldir samtals 32,9 mkr. Peningalegar eignir umfram skuldir námu því 248,3 mkr.
Hér má sjá ársreikning Fljótsdalshrepps.
Dagskrá:
Oddviti Fljótsdalshrepps
Jóhann F. Þórhallsson
Næsti sveitarstjórnarfundur Fljótsdalshrepps verður haldinn í Végarði 18.2.2022, kl. 13:30
Dagskrá:
Oddviti Fljótsdalshrepps
Jóhann F. Þórhallsson