Frjáls félagasamtök

Búnaðarfélag

Einstaklingar í Fljótsdalshrepp geta gerst félagsmenn í Búnaðarfélagi Fljótsdals. Félagið á töluvert af vélum sem það leigir út til félagsmanna.  Fá formann til að útbúa texta.

Sjá tækjalista og upplýsingar um útleigu. 

Formaður félagsins er Einar Sveinn Friðriksson  S:844 0041, netfang: einaaruski hjá gmail.com


Hnútu handverk

Félagsskapurinn er enn sem komið er óformlegur en stendur að viðburðum og hvetur handavinnu/verks fólk Fljótsdals og nær sveitum til að koma saman í spjall, sinna handverki og miðla því sem það er að gera til annarra. Félagsskapurinn mun standa að námskeiðum og fá utan að komandi aðila til að kynna handverk, s.s. prjón, hekla, sauma, sápugerð, litun á garni, tálgun í tré og fleira allt eftir áhuga félagsmanna.  Samvinna er við Hallormsstaðaskóla um viðburði fyrir félagsmenn og um námskeiðahald.

Tengiliður: Kristín Gunnarsdóttir, s: 690 1276, netfangið: stina_gunn at hotmail.com


Ungmennafélagið Þristur

Félagsmenn ungmennafélagsins koma frá Fljótsdal og nærsveitum á Héraði. Félagði leggur megin áherslu á útivist hverskonar fyrir börn og ungmenni sem og hjólreiðar. Félagið hefur einni aðkomu að Náttúruskólanum við Óbyggðasetrið sem og kemur það að leikjadagskrá á Fljótsdalsdaginn, hátíð dalsins.

Nánari upplýsingar á heimasíðu félagsins, facebook-síðu þeirra eða á thristur701 at gmail.com

We use cookies on our website. Some of them are essential for the operation of the site, while others help us to improve this site and the user experience (tracking cookies). You can decide for yourself whether you want to allow cookies or not. Please note that if you reject them, you may not be able to use all the functionalities of the site.

Ok