Eygló vermir Austurland

Samstarfsverkefni um orkuskipti og orkutengda nýsköpun

Samstarfsverkefni á grunni hringrásarhagkerfis, orkuskipta og nýsköpunar á Austurlandi, sem hlotið hefur nafnið Eygló, var stofnað formlega í dag. Skrifað var undir samstarfssamning þess efnis í Fljótsdalsstöð milli Landsvirkjunar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, Austurbrúar og sveitarfélaga á Austurlandi; Múlaþings, Fjarðarbyggðar, Fljótdalshrepps og Vopnafjarðarhrepps.  Heitið Eygló vísar til öflugasta orkugjafans, sólarinnar, og til bjartrar og kraftmikillar framtíðar. Verkefnið er til fjögurra ára og nemur fjárframlag stofnaðila alls 240 milljónum króna.

Meginmarkmið Eyglóar er að efla nýsköpun og þróun, með áherslu á að bæta nýtni hliðarstrauma og flétta þá inn í nýja verðmætasköpun. Þetta styður við vöxt sprotafyrirtækja og fjölgar tækifærum til þátttöku í  alþjóðlegum rannsókna- og þróunarverkefnum í samstarfi við fyrirtæki á svæðinu. Eygló er fjórða svæðisbundna samstarfsverkefnið sem Landsvirkjun og samstarfsaðilar hafa komið á fót, en fyrir eru Eimur á Norðurlandi, Orkídea á Suðurlandi og Blámi á Vestfjörðum.

Ýtt undir hringrásarhagkerfið

Ætlunin með Eygló er að leiða saman aðila til að afla alþjóðlegs fjármagns til tilrauna, rannsókna og þróunar á orku- og loftslagsvænum lausnum. Með auknu samstarfi fyrirtækja og opinberra aðila er ýtt undir verkefni sem byggja á verðmætasköpun úr vannýttu hráefni, bæði úr því sem er til staðar og því sem verður til vegna nýrra verkefna eða framleiðslu.

Ráðgert er að Austurbrú auglýsi eftir sérfræðingum til starfa við verkefnið innan skamms.

Guðlaugur Þór Þórðarson, ráðherra umhverfis-, orku- og loftslagsmála:

Hér gefst okkur tækfæri til að virkja það hugvit, auðlindir og þekkingu sem fyrir hendi er í landshlutanum. Sameiginlegt átak og stuðningur öflugra aðila skiptir þó sköpum eigi betri nýting auðlinda og frekari verðmæta- og nýsköpun að verða að veruleika. Það er ánægjulegt að ráðuneytið sé slíkur bakhjarl.“

Sigurður H. Markússon, forstöðumaður nýsköpunar hjá Landsvirkjun:

„Lykilinn að árangri við leit að sjálfbærari lausnum til framtíðar er að ólíkir aðilar vinni saman við að koma auga á og þróa áfram nýjar lausnir. Það er mjög ánægjulegt að sjá þetta samstarf milli sveitarfélaga á Austurlandi, ráðuneytisins og Landsvirkjunar verða að veruleika og þannig styðja við uppbyggingu þekkingar og framþróunar á sviði orkutengdrar nýsköpunar á Austurlandi.“

 

Berglind Harpa Svavarsdóttir, stjórnarformaður Austurbrúar og Sambands sveitarfélaga á Austurlandi:

„Eygló rímar vel við skýra sýn Austfirðinga um hvernig takast megi á við þær áskoranir sem snúa að  loftslagsmálum og hringrásarhagkerfinu sem lagt er fram í svæðisskipulagi Austurlands. Eygló byggir á því að nýta svæðisbundna styrkleika, innviði, fyrirtæki og mannafla til að mynda frjóan jarðveg fyrir nýsköpun og aukna verðmætasköpun. Þessi grunnur og sá slagkraftur sem stuðningur Landsvirkjunar og ráðuneytisins gefa með þessu verkefni mun án efa nýtast öllu Austurlandi til framfara.“

eyglo2 2023

We use cookies on our website. Some of them are essential for the operation of the site, while others help us to improve this site and the user experience (tracking cookies). You can decide for yourself whether you want to allow cookies or not. Please note that if you reject them, you may not be able to use all the functionalities of the site.

Ok