Vinnustofur í tengslum við umsóknir í Samfélagssjóð
Hlutverk Samfélagssjóðs er að veita fjárhagslegan stuðning til nýsköpunar, menningar og atvinnuskapandi verkefna í Fljótsdal. Umsóknafrestur er til 30. apríl 2020.
Einstaklingar, félög og lögaðilar geta sótt um í sjóðinn óháð búsetu.
Boðið verður upp á vinnustofu með verkefnastjóra Fagrar framtíðar í Fljótsdal á eftirfarandi stöðum:
Á Egilsstöðum, þriðjudaginn 21. apríl milli kl 13:00-15:30
Í Végarði, miðvikudaginn 22. apríl milli kl 12:30-15:30
Þeir sem vilja nýta sér þetta þurfa að bóka tíma fyrirfram þannig að hægt sé að skipuleggja fyrirkomulagið í samræmi við viðmiðunarreglur v/Covid-19.
Hafa skal samband í síma 4708310 eða um asdis@austurbru.is