Hreindýraarðsskrá 2019
Drög að hreindýraarðsskrá fyrir árið 2019 á ágangssvæði/jarðir í Fljótsdalshreppi liggja frammi til skoðunar á skrifstofu Fljótsdalshrepps í Végarði, til 14.12 2019 og er það sá frestur sem gefinn er til að gera athugasemdir . Skriflegar athugasemdir skulu berast skrifstofu Umhverfisstofnunar Tjarnarbraut 39, Pósthólf 174, 700 Egilsstaðir.