Verkefna-og rannsóknarsjóður, auglýst eftir umsóknum úr sjóðnum 2019
Verkefna-og rannsóknasjóður Fljótsdalshrepps og Landsbankans auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum árið 2019.
Veittir verða tveir aðalstyrkir kr. 300.000,- og ef stjórn ákveður svo , verður einnig veittur einn verkefnastyrkur kr. 100.000,-. Sjóðsstjórn getur ákveðið þegar umsóknir liggja fyrir að eingöngu verði veittir styrkir til aðalverkefna ársins og hækka þá þær styrkupphæðir í kr. 350.000.
Heimilt er að fella úthlutun ársins niður telji sjóðsstjórn engar umsóknir hæfar.
Úthlutað er til verkefna sem tengjast Fljótsdalshreppi, eða verkefna sem sjóðsstjórn telur að nýtast muni sveitarfélaginu. Háskólanemar með lögheimili í Fljótsdalshreppi, sem sækja um fyrir verkefni sem metin eru hæf af sjóðsstjórn, hafa forgang umfram aðra umsækjendur.
Umsóknum skal skila til skrifstofu Fljótsdalshrepps, Végarði, 701 Egilsstaðir, eigi síðar en mánudaginn 23. september 2019, eða á netfangið fljotsdalshreppur@fljotsdalur.is. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðunni, hér